Login

09/01/22 18:00 Golfstart|Grafarholt 18 brautir |ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavíkurborg


PDGA Fimmtudagsdeild FGR heldur áfram nk fimmtudag 1.september kl 18:00  í GRAFARHOLTI , Spilað eru 18 brautir. 

Nú er deildin stök c-tier mót , og því þarf að taka bráðabana ef keppendur lenda jafnir í 1.sæti, en keppandi má einnig gefa sætið sitt.

Ef pollar hafa myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. ) 

Spilað er eftir PDGA reglum. ( muna skrifa skor á 2 staði )

Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.

Skráning opnar sunnudaginn 28.ágúst kl 20:00 og lokar fimmtudaginn 1.september kl 16:00 , ekki verður hægt að breyta skráningunni eftir að henni er lokað, eða skrá sig.

Boðið verður uppà 7 flokka.

í þessum flokkum er spilað á BLÁUM teigum:

MA1, MA2, MJ18.

í þessum flokkum er spilað á HVÍTUM teigum:

FA1, MA3.

Í þessum flokkum er spilað á hvítum teigum en ekki gefin PDGA stig, tilvalið fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í frisbímótum.

FA2,MA4

 

Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti i öllum flokkum.

Mótsgjald er 1000kr, en mótið er innifalið í gullaðild FGR 2022.

Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.

Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.

Fyrirkomulag:

Mótstjórar : Guðrún Fjóla 

Mótsdómari: Guðrún Fjóla

Melding er milli kl 16:30-17:30:00 

EINUNGIS HÆGT AÐ MELDA SIG RAFRÆNT MEÐ SMS EÐA HRINGJA Í SÍMA  7740251

 

Ef keppandi melda sig ekki á tilsettum tíma missir hann þáttökurétt í mótinu og fer á refsibiðlista í næsta móti sem hann skráir sig á vegum FGR.

Share

What would you like to share?