Hole-by-hole statistics
View: Grouped chart | Detailed chart | TableThe result was updated on: 2024-01-21 15:13:28. Free discgolfmetrix.com is used
User statistics
Results will be updated every 30 seconds!
Vetrarmòt FGR - 2DC á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.
Vetramót FGR eru frisbígolfmót sem haldin eru á sunnudögum í vetur en spilað verður á mismunandi völlum og mótin með mismunandi fyrirkomulagi.
Öllum er velkomið að taka þátt enda boðið uppà ólíka getuflokka þegar við á, og keppendur velja sér þannig flokk við hæfi. Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref á folfmótum eru sérstaklega velkomin, en mòtin henta öllum getustigum og aldri. Við hvetjum alla til að taka þátt, sjáumst á sunnudögum í vetur.
Mótafyrirkomulag:
2DC á Víðistaðatúni
Keppendur spila með einum disk á brautum 1-9 og öðrum disk brautir 10-18 ( en má samt nota sama disk ef keppendur kjósa það.) það má hafa 2 auka diska með ef hinir týnast.
Allir keppendur efstu 3 sætunum fá 500 kr gjafakort frá Frisbígolfbúðinni.
Almennar upplýsingar:
Vetrarmót FGR verður nk sunnudag 21.janúar kl 12:00 á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Spilað verður 18 brautir.
Skráning opnar föstudaginn 19.janúar kl 18:00 og lokar sunnudaginn 21.janúar kl 10:30
Skràð er skor á metrix og er nóg að einn keppandi í hollinu skrái.
Mótsgjald er 1000 kr á mann , en mótið er innifalið í gullaðild FGR 2023.
FGR GULLMEÐLIMIR FÁ FORGANG Í MÓTIÐ.
Reikningsupplýsingar: 450917-3030 / 515-26-173030
Vallar og flokkar
Utan vallar eru umferðagötur, bílastæði og einkagarðar.
BÆTT VIÐ:
Malbikaðir göngustígar og handan þeirra er utan vallar og eyja á braut 5/14.
Ef pollar/drulla/greinahrúga hefur myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. )
Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.
Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.
Fyrirkomulag:
Mótstjóri: Guðrún Fjóla og Hoddó.
Mótsdómari: Guðrún #117713
Ef keppandi þarf að ná sambandi við mótsstjóra vegna mótsins vinsamlegast hafið samaband í mótasímann eða gegnum e-mail , ekki gegnum perónulega messanger mótsstjóra.
Melding er milli kl 10:30 - 11:30 , holl koma inn í síðasta lagi 11:45, ekki er hægt að hleypa keppanda inní mótið eftir að holl hafa verið birt.
EINUNGIS HÆGT AÐ MELDA SIG RAFRÆNT MEÐ SMS EÐA HRINGJA Í SÍMA 7740251