Hole-by-hole statistics
View: Grouped chart | Detailed chart | TableThe result was updated on: 2024-07-07 23:10:53.
User statistics
|
Show presenter |
Show pdf Results will be updated every 30 seconds!
Styrktaraðili Kvennamótaraðar ÍFS eru Folfdiskar.is.
Almennar upplýsingar
- Mótið kostar 1000 kr, eða 2500 kr fyrir alla mótaröðina. Lagt inn á reikning 0513-14-503326, kt. 450705-0630 fyrir mót. Skýring ,,kvenna" og kvittun á motanefnd@folf.is eða koma upplýsingum/pening til mótsstjóra.
- Við hittumst hjá 5. teig kl.18:00 og fáum upplýsingar um byrjunarteiga og leik mótsins. Gott að mæta aðeins fyrr ef ykkur vantar aðstoð við að læra reglur.
- Við spilum 20 holur.
- Einungis ein kona í hverju holli þarf að skrá skor á metrix. Mælum með að þær sem eru nýjar æfi sig líka að skrá aukalega.
- Verðlaunaafhending eftir að allar klára hringina og eftir leik mótsins.
Leikurinn
- CTP (closest to pin) verður spilað á holu 3 eftir mótið.
- Allar kasta 1 disk og reyna að lenda sem nálægast körfu, svo fá allar annað tækifæri og kasta allar einum disk aftur.
- Sú sem lendir nálægast körfunni vinnur.
- Leyfilegt er að nota sama disk í bæði köstin, allir diskar eru teknir upp eftir fyrstu umferð.
Vallarreglur
- FA1 og FA2 spila hvíta teiga, FA3 spila rauða teiga. Ef samstaða er hjá öllum FA3 spilurum að þær vilji frekar spila hvíta teiga þá er það leyfilegt.
- Allir göngustígar og gangstéttir spilast innan vallar.
- Hafið auga með gangandi og hjólandi vegfarendum áður en þið kastið.
- Utan vallar (OB) eru öll grindverk og allt handan þeirra auk allra gatna og handan þeirra. Undantekning er grindverk sem aðskilur holu 1 og 2.
- Ef diskur liggur á götubrún þá er hann innan vallar.
- Ef diskur lendir ofan á húsi þá má kasta frá jörðu sem er nálægast húsinu án refsingar og fær spilari 1 metra frá húsinu í beina línu hornrétt.