Kuldakast í laugardalnum sunnudaginn 9.janúar kl 12:00
Skráning opnar fimmtudaginn 6.janúar kl 20:00 og lokar Sunnudaginn 9.janúar kl 10:00
Hámark 50 keppendur.
Boðið verður uppà 4 flokka.
Opinn flokk
Almennur flokkur
Kvennaflokk
Ungmennaflokk 18 àra og yngri.
Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti i öllum flokkum.
Mótsgjald er 1000kr, en 500kr fyrir ungmennaflokk. Frítt fyrir gullmeðlimi FGR sem voru skráðir og greiddir meðlimir 2021.
Keppt verður í Laugardal 2x10 brautir.
Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.
Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.
1/11 braut: Leikskólalóð og bílastæði er OB.
2/12 braut: nokkrum metrum lengra en karfan er grindverk, hinum megin við það er OB. EKKI OB að fara yfir grindverk hægra megin á brautinni.
3/13 braut. Ekkert
4/14 braut. Ekkert.
5/15 braut.Húsdýragarðurinn er OB.
6/16 braut. Fótboltavöllur OB.
7/17 braut. Bílastæði OB.
8/18braut. Ekkert.
9/19 braut. Húsdýrgarður er OB
10/20 braut. Gatan er OB og allt hinum megin við hana.
Spilað verður eftir þessu forriti: https://frisbi.netlify.app/
Einungis í upphafskasti á öllum teigum eiga allir keppendur að kasta eftir því sem forritið segir.
Dæmi: Ef upp kemur "Driver Anhyzer" kasta allir á teig þannig kasti, sem sagt sama kast fyrir alla í hollinu.
Það má standa við hliðiná teigum ef þeir eru sleipir.
Fyrirkomulag:
Mótstjórar : Guðrún Fjóla og Þorgerður Fríða ( með fyrirvara vegna mögulegrar sóttkví )
Melding með sms í síma 7740251 milli 10:40- 11:40, eftir þann tíma er keppandi tekinn ut og biðlista hleypt inn.