Login

01/12/22 20:00|Seljavöllur 2x9|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavíkurborg


Síðasta Ljósasería FGR í bili er næsta miðvikudag 12.janúar kl 20:00 á Seljavelli.

 

Skráning opnar mánudaginn 10.janúar kl 20:00 og lokar miðvikudaginn 12.janúar kl 18:00

Hámark 45 keppendur.

 

Boðið verður uppà 3 flokka.

Opinn flokk

Almennur flokkur

Kvennaflokk.

 

Veitt verða verðlaun fyrir 1.sæti , 5.sæti og 10.sæti í opnum og almenna flokk, en 1.sæti, 3.sæti og 5.sæti í kvennaflokk. 

Mótsgjald er 500kr ,Frítt fyrir gullmeðlimi FGR sem voru skráðir og greiddir meðlimir 2021.

 

Valfrjáls ásapottur er í boði og kostar 500kr að taka þàtt í honum, greiða þarf áður en mót hefst. 

 

Keppt verður á Seljavelli  2x9 brautir.

Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.

Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.

Allt vatn, einkagarðar og umferðagötur eru OB. 

Það má standa við hliðiná teigum ef þeir eru sleipir.

 

Fyrirkomulag:

Mótstjórar : Guðrún Fjóla og Þorgerður Fríða.

Melding með sms í síma 7740251 milli 18:40-19:40 eftir þann tíma er keppandi tekinn ut og biðlista hleypt inn. 

Holl tilbúin á metrix kl 19:45.

Share

What would you like to share?