Login

05/20/22 - 05/22/22 Golfstart|Grafarholt 18 brautir |ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavíkurborg


Opna Reykjavíkurmótið er hluti af Íslandsbikarnum, gullmótaröð ÍFS.

Keppt verður á Grafarholtsvelli dagana 20.-22. maí og leikinn verður einn hringur á dag, ræst út af fyrsta teig. Gert er ráð fyrir að fyrsti ráshópur fari af stað kl. 14 á fyrsta degi og að rástími fyrsta ráshóps laugardags og sunnudags verði kl. 10. Röð ræsingar verður eftir flokkum og skori í 2. og 3. hring í þessari röð: MA1, MJ18, FA1, FPO, MP50, MP40, MPO. Mögulega geta orðið smávægilegar breytingar á þessari röð ef eitthvað óvænt kemur upp á.

Völlurinn

Grafarholtsvöllur verður stækkaður í 18 brautir vorið og sumarið 2022. Búast má við talsverðum tæknilegum áskorunum á þröngum skógarbrautum sem bætast við þær sem fyrir eru.

7 keppnisflokkar eru í boði: 

Opinn meistaraflokkur - MPO  

Meistaraflokkur kvenna - FPO  

Stórmeistaraflokkur 40+ - MP40  

Stórmeistaraflokkur 50+ - MP50  

Almennur flokkur 1 - MA1  

Almennur flokkur kvenna 1 - FA1  

Ungmennaflokkur 18 ára og yngri - MJ18 

Mótsgjald: 8.000 kr.

Fullgilt félagsfólk FGR fær 50% afslátt af mótsgjaldi.

Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FGR: 515-26-173030, Kt. 450917-3030, setja OR2022 í skýringu og kvittun fyrir greiðslu á gjaldkeri@fgr.is. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt og getur viðkomandi misst sæti sitt ef ekki hefur verið gengið frá greiðslu og fjöldi greiddra þátttökutilkynninga fer yfir hámarksfjölda. Að teknu tilliti til framangreinds eru allra síðustu forvöð til að ganga frá mótsgjaldi 13. maí.

Opnað verður fyrir skráningu í áföngum miðað við PDGA stig spilara.

Fyrsta skref skráningar 

Kvennaflokkar og ungmennaflokkur - 700 PDGA stig og hærri. Stórmeistaraflokkar – 800 PDGA stig og hærri.  Aðrir flokkar - 850 PDGA stig og hærri. 

Annað skref skráningar  

Kvennaflokkar og ungmennaflokkur – 600 PDGA stig og hærri. Stórmeistaraflokkar – 700 PDGA stig og hærri. Aðrir flokkar - 800 PDGA stig og hærri.

Þriðja skref skráningar 

Ef mótið er ekki fullt verður opnað fyrir skráningu spilara með lægri pdga stig ef aðstæður leyfa. 

—————

ENGLISH

The Reykjavik Open is a part of the Iceland Gold Cup tour of the Icelandic Disc Golf Association. The tournament takes place at the Grafarholt course on May 20-22. First groups are scheduled to start 3.30 PM on friday and 10 AM saturday and sunday. These times are subject to minor changes as the number of participants becomes clear.

Registration fee is 8000 ISK.

Seven classes are offered: MPO, FPO, MP0, MP50, MA1, FA1, MJ18.

Three registration stages are based on PDGA rating minimums.

For further information please e-mail fgr@fgr.is.

Share

What would you like to share?