Login

05/12/22 19:00|Gufunes 2021 → 1|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavíkurborg


PDGA Fimmtudagsdeild FGR fimmtudaginn 12.maí kl 19:00 í Gufunesinu. Spilað eru 18 brautir.

Ef pollar hafa myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. ) 

Skipts verður á að hafa random innan flokka og svo alveg random í hollum.  

Spilað er eftir PDGA reglum. ( muna skrifa skor á 2 staði )

Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.

Skráning opnar sunnudaginn 8.maí kl 20:00 og lokar fimmtudaginn 12.maí kl 17:00, ekki verður hægt að breyta skráningunni eftir að henni er lokað, eða skrá sig.

Boðið verður uppà 7 flokka.

MA1, MA2, MA3, FA2, MJ18 spila á bláum teigum og fá PDGA stig 

keppendur sem kepptu í  MA2 fara uppí MA1

Keppendur sem kepptu í  MA3 fara uppí MA2

Keppendur sem kepptu í MA4 fara uppí MA3

MA4 , FA3 spila á hvítum teigum en fá EKKI pdga stig, þetta er frábær leið fyrir byrjendur að öðla sér reynslu að spila í PDGA móti. 

Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti i öllum flokkum.

Veitt verða verðlaun fyrir deildina, bestu 4 af 6 gilda fyrir þá keppendur sem eru á bláum teigum , en bestu 2 af 3 gilda fyrir keppendur á hvítu teigum. 

Mótsgjald er 1000kr, en mótið er innifalið í gullaðild FGR 2022.

Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.

Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.

Öll OB og mandó í leik. ATH breyttar reglur varðandi mandó.( pollar eru casual ) 

Fyrirkomulag:

Mótstjórar : Guðrún Fjóla 

Mótsdómari: Guðrún Fjóla

Melding er milli kl 17:30-18:30:00 ( engin undantekning )

Melding með sms í síma 7740251

Ef keppandi melda sig ekki á tilsettum tíma missir hann þáttökurétt í mótinu og fer á refsibiðlista í næsta móti sem hann skráir sig á vegum FGR.

Share

What would you like to share?