Login

06/24/22 - 06/26/22|Grafarholt 18 brautir |ICELAND


Sólstöðumótið 2022 er hluti af Íslandsbikarnum, gullmótaröð ÍFS.

Mótstjóri: Þorgerður Guðmundsdóttir

Aðstoðarmótstjóri: Guðrún Fjóla

Mótsdómari: Þorgerður Guðmundsdóttir

Aðstoðardómari: Guðrún Fjóla

Keppt verður á Grafarholtsvelli og Gufunesvelli dagana 24.-26. júní og leikinn verður einn hringur á dag, Grafarholt á föstudegi og sunnudegi og Gufunes á laugardegi. Ræst út af fyrsta teig. Gert er ráð fyrir að fyrsti ráshópur fari af stað kl. 14 á fyrsta degi og að rástími fyrsta ráshóps laugardags og sunnudags verði kl. 10

7 keppnisflokkar eru í boði: 

Opinn meistaraflokkur - MPO  

Meistaraflokkur kvenna - FPO  

Stórmeistaraflokkur 40+ - MP40  

Stórmeistaraflokkur 50+ - MP50  

Almennur flokkur 1 - MA1  

Almennur flokkur kvenna 1 - FA1  

Ungmennaflokkur 18 ára og yngri - MJ18 

Mótsgjald: 8.000 kr.

Fullgilt félagsfólk FGR fær 50% afslátt af mótsgjaldi.

Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FGR: 515-26-173030, Kt. 450917-3030, setja SOL2022 í skýringu og kvittun fyrir greiðslu á gjaldkeri@fgr.is. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt og getur viðkomandi misst sæti sitt ef ekki hefur verið gengið frá greiðslu og fjöldi greiddra þátttökutilkynninga fer yfir hámarksfjölda. Að teknu tilliti til framangreinds eru allra síðustu forvöð til að ganga frá mótsgjaldi 19.júní kl 20:00.

Opnað verður fyrir skráningu í áföngum miðað við PDGA stig spilara.

Fyrsta skref skráningar 

Kvennaflokkar og ungmennaflokkur - 700 PDGA stig og hærri. Stórmeistaraflokkar – 800 PDGA stig og hærri.  Aðrir flokkar - 850 PDGA stig og hærri. 

Annað skref skráningar  

Kvennaflokkar og ungmennaflokkur – 600 PDGA stig og hærri. Stórmeistaraflokkar – 700 PDGA stig og hærri. Aðrir flokkar - 800 PDGA stig og hærri.

Þriðja skref skráningar 

Ef mótið er ekki fullt verður opnað fyrir skráningu spilara með lægri pdga stig ef aðstæður leyfa. 

Ekki verður hægt að breyta skráningu eða skrá sig eftir að skráning líkur.

Endugreiðslur verða gerðar samkvæmt PDGA reglum. 

Ekki verður tekið við séróskum um rástíma.

Share

What would you like to share?