PDGA Þriðjudagsdeild FGR heldur áfram nk þriðjudag 30.ágúst kl 18:00 í GRAFARHOLTI Spilað eru 18 brautir.
Nú er deildin stök c-tier mót , og því þarf að taka bráðabana ef keppendur lenda jafnir í 1.sæti, en keppandi má einnig gefa sætið sitt. PDGA skýrsla verður skilað inn innan við 24 klst eftir að mót líkur.
Ef pollar hafa myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. )
Spilað er eftir PDGA reglum. ( muna skrifa skor á 2 staði )
Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.
Skráning opnar sunnudaginn 28.ágúst kl 20:00 og lokar þriðjudaginn .30.àgúst kl 16:00 , ekki verður hægt að breyta skráningunni eftir að henni er lokað, eða skrá sig.
Boðið verður uppà 5 flokka.
MPO, FPO, MA1, MP40 og MP50
Allir flokkar spila á bláum teigum.
Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti i öllum flokkum.
Mótsgjald er 1000kr, en mótið er innifalið í gullaðild FGR 2022.
Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.
Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.
Fyrirkomulag:
Mótstjórar : Guðrún Fjóla
Mótsdómari: Guðrún Fjóla
Melding er milli kl 16:30-17:30:00 ( engin undantekning )
EINUNGIS HÆGT AÐ MELDA SIG RAFRÆNT MEÐ SMS EÐA HRINGJA Í SÍMA 7740251
Ef keppandi melda sig ekki á tilsettum tíma missir hann þáttökurétt í mótinu og fer á refsibiðlista í næsta móti sem hann skráir sig á vegum FGR.