Login

10/16/22 12:00|Vífilsstaðir → 20|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Garðabær


PDGA Laugardagsdeild FGR heldur áfram  nk SUNNUDAG 16.október kl 12:00 á VÍFILSSTÖÐUM, Spilað eru 20 brautir. 

VÖLLURINN:

BRAUT 1/11 LANGI TEIGURINN

BRAUT 5/15 KVÖÐ ( MANDÓ )  ( FARA VERÐUR HÆGRA MEGIN VIÐ STÖNGINA ) 

BRAUT 1 / 3 / 10 / 11 / 13 / 20 MÖL ER TOFFÆRA ( HAZZARD )

MALBIKAÐI GÖNGUSTÍGUR NEÐST Á VELLINUM OG HANDAN HANS ER UTAN VALLAR ( OB ) GILDIR Á ÖLLUM BRAUTUM.

Ef pollar hafa myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. ) 

Spilað er eftir PDGA reglum. ( muna skrifa skor á 2 staði )

Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.

Skráning opnar fimmtudaginn 13.okt kl 20:00 og lokar sunnudaginn 16.október kl 10:00 , ekki verður hægt að breyta skráningunni eftir að henni er lokað, eða skrá sig.

Boðið verður uppà 7 flokka. ALLIR Á SÖMU TEIGUM.

PDGA stig í þessum flokkum:

MA1, MA2, MJ18, FA1, MA3.

Ekki gefin PDGA stig í þessum flokkum, tilvalið fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í frisbímótum:

FA2,MA4

Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti i öllum flokkum.

Mótsgjald er 1000kr, en mótið er innifalið í gullaðild FGR 2022.

Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.

Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.

Fyrirkomulag:

Mótstjórar : Guðrún Fjóla ( á staðnum ) og Þorgerður Fríða

Mótsdómari: Guðrún Fjóla

Melding er milli kl 10:30-11:30:00 ( holl koma inn síðasta lagi 11:40 )

EINUNGIS HÆGT AÐ MELDA SIG RAFRÆNT MEÐ SMS EÐA HRINGJA Í SÍMA  7740251

Ef keppandi melda sig ekki á tilsettum tíma missir hann þáttökurétt í mótinu og fer á refsibiðlista í næsta móti sem hann skráir sig á vegum FGR.

Share

What would you like to share?