Login

07/15/23 - 07/16/23|Njarðvíkurskógur|ICELAND, Reykjanes, Reykjanesbær


ATH - Melding með SMS í síma 784-1610 amk klukkutíma fyrir rástíma
 

Silfurmótið í Njarðvíkurskógi er hluti af Íslandsbikarnum, silfurmótaröð ÍFS.

 

Dagskrá

Laugardaginn 15. júlí

8:00 - 9:00 - Melding með SMS með nafni í síma 784-1610 og láta þar með mótsstjóra vita að þeir ætla að mæta. Eða hitta mótsstjóra við kofan hjá holu 1 í Njarðvíkurskógi.

9:10 - Keppendur sjá á metrix hvaða braut þeir byrja á.  Ef hóparnir eru gefnir út fyrir þennan tíma gætu þeir breyst lítillega þegar endanlegur fjöldi keppanda er kominn í ljós.

9:40 - Hittumst hjá kofanum við holu eitt í Njarðvíkurskóg, mótstjórar fara yfir reglur vallarins.

9:50 - Hópmyndataka

10:00 - Allir keppendur ræsa af teig með sýnum hóp (sjá "show groups" fyrir teig hvers keppanda fyrir sig). 2 keppendur skrá skor, einn á metrix og einn á t.d Udisc

12:30 - Mótsdegi lokið.

Sunnudaginn 16. júlí

Keppendur þurfa að melda sig með SMS með nafni 60 mín fyrir sinn rástíma í síma 784-1610 og láta vita að þeir mæta. Eða hitta mótsstjóra við kofan hjá holu 1 í Njarðvíkurskógi.

14:30 - Verðlaunaafhending og myndataka

Tímasetningar kunna að breytast lítillega þegar nær dregur og endanlegur fjöldi keppenda er ljós.

 

Völlurinn

Völlurinn er 18 brautir á frekar opnu svæði en fyrir mótið verður búið að bæta við OB línum o.fl. sem gera völlinn meira krefjandi (sjá kort fyrir neðan textann)

 

7 keppnisflokkar eru í boði

Almennur flokkur 2 – MA2
Almennur flokkur kvenna 2 – FA2  
Almennur flokkur 40 ára og eldri - MA40  
Almennur flokkur 50 ára og eldri - MA50
Almennur flokkur 3 – MA3 
Ungmennaflokkur 15 ára og yngri - MJ15
Barnaflokkur 12 ára og yngri – MJ12

Til að skipta um flokk þarf að afskrá sig og skrá sig upp á nýtt.

 

Almennt

Mótsgjald: 6.000 kr. (frítt fyrir 12 ára og yngri)

Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FFS: 0133-26-013426, Kt. 531217-0390, og  senda kvittun fyrir greiðslu á frisbigolffelagsudurnesja@gmail.com. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt og getur viðkomandi misst sæti sitt ef ekki hefur verið gengið frá greiðslu og fjöldi greiddra þátttökutilkynninga fer yfir hámarksfjölda.

Í skráningu fyrir mót í silfurmótaröðinni gildir fyrstur kemur fyrstur fær og opnar því skráning fyrir alla á sama tíma.

 

Athugið að keppendur á Gullmótaröðinni geta ekki tekið þátt á Silfurmótaröðinni enda er hún hugsuð til að auka framboð fyrir nýjan hóp keppenda.

Farið er eftir PDGA reglum og gert er ráð fyrir að keppendur þekki þær.

Stranglega bannað er að reykja, veipa og neyta áfengis eða annarra vímuefna.

Keppendur í barnaflokki þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.

Við verðum með flokkaskipt CTP verðlaun í gangi yfir báðar umferðir

MA2 - CTP á braut 16

MA3 og FA2 saman - CTP á braut 8

MA40 og MA50 saman - CTP á braut 1

MJ12 og MJ15 saman - CTP á braut 12

Diskur telst ekki með ef hann er í hazard eða OB

Einnig verða ásaverðlaun í boði á öllum brautum

—————

ENGLISH

Silfurmótið í Njarðvíkurskógi is a part of the Iceland Silver Cup tour of the Icelandic Disc Golf Association. The tournament takes place at the Njarðvíkurskógur course on July 15-16. First groups are scheduled to start 10 AM saturday and sunday. These times are subject to minor changes as the number of participants becomes clear.

Registration fee is 6000 ISK.

Six classes are offered: MA2, FA2, MA40, MA50, MA3, MJ15, MJ12.

For further information please e-mail frisbigolffelagsudurnesja@gmail.com

Share

What would you like to share?