Login

  • Tilkynna þarf forföll eða mætingu samdægurs lágmark klukkutíma fyrir auglýstan mótstíma í síma 8610343 eða í gegnum einkaskilaboð á Facebook til Svandísar.
  • Mótið kostar 1000 kr, eða 3000 kr fyrir alla mótaröðina. Lagt inn á reikning 0513-14-503326, kt. 450705-0630 fyrir mót.
  • Við spilum 1 hring
  • Sækja upplýsingar og skráningarblað fyrir leik mótsins til mótsstjóra.
  • 40 mínútum fyrir auglýstan mótstíma – aðstoðað með skráningu, farið yfir helstu reglur og svarað spurningum. Skyldumæting fyrir þær sem eru að mæta á fyrsta mót, frjáls mæting fyrir aðrar.
  • Hálftíma fyrir mót – mælst til að vera mætt á völlinn og hita upp.
  • Tuttugu mínútum áður en við leggjum af stað gefum við upplýsingar um teig sem keppendur byrja að spila völlinn á. Það byrja allir á sama tíma og því byrjað á mismunandi stöðum á vellinum.
  • Tíu mínútum fyrir auglýstan mótstíma, sem er jafnframt rástími (tími til að leggja af stað í keppnina), þarf að mæta á teig og ákveða hver skráir skor keppenda. Einungis ein kona í hverju holli þarf að skrá skor.
  • Verðlaunaafhending og hópmynd eftir mót. Safnast saman hjá húsinu við bílaplanið.
  • Leikur mótsins: Karfan út!
    • Leikreglur
      • Ef diskur kemur við einhvern hluta körfunnar fyrir utan stöngina undir körfunni sjálfri, en endar ekki ofan í körfunni þá fær spilari 1 stig sem er skráð á sér blað.
      • Ef diskur kemur við marga hluta körfunnar, t.d. keðjur, topp og körfu, þá fær spilari samt bara eitt stig.
      • Ef mörg mismunandi köst hjá spilara koma við körfuna og enda ekki ofan í þá fær spilari 1 stig fyrir hvert kast.
      • Ef diskur endar ofan í þá fær spilari ekki stig.
      • Ekki skiptir máli hvort um er að ræða kast eða pútt; ef diskur kemur við körfu frá löngu kasti, t.d. 65 metra kasti af teig, og endar ekki ofan í þá fær spilari líka 1 stig.
      • Sú sem fær flest stig vinnur!

 

Vallarreglur

FA1 spilar á hvítum teigum. FA2 og FA3 spila á rauðum teigum.

  1. Staurar og reipi marka OB
  2. Ekkert
  3. Ekkert
  4. Ekkert
  5. Ekkert
  6. Ekkert
  7. Ekkert
  8. Þreföld kvöð við hvíta teig
  9. Göngustígur og handan OB
  10. Ekkert
  11. Sjá sérreglu fyrir neðan
  12. Göngustígur og handan OB
  13. Ekkert
  14. Ekkert (ATH GÆTI BREYST, FER EFTIR STÖÐU Á HOLU)
  15. Þreföld kvöð við hvíta teig
  16. Ekkert
  17. Staurar og reipi marka OB. Ef diskur lendir í "vatni" (bein lína endalaust til hægri og vinstri) þá er spilað af fallreit, annars er spilað eftir venjulegum OB reglum
  18. Göngustígur og handan OB (merkt með reipi) nema hjá holu þar sem máluð lína markar OB

Share

What would you like to share?