Login

  • Tilkynna þarf forföll eða mætingu samdægurs lágmark klukkutíma fyrir auglýstan mótstíma í síma 8610343 eða í gegnum einkaskilaboð á Facebook til Svandísar.
  • Mótið kostar 1000 kr, eða 3000 kr fyrir alla mótaröðina. Lagt inn á reikning 0513-14-503326, kt. 450705-0630 fyrir mót.
  • Við spilum 2x9 holu hringi.
  • Hægt að nálgast upplýsingar um leik mótsins til mótsstjóra. Upplýsingar hér fyrir neðan.
  • 40 mínútum fyrir auglýstan mótstíma – aðstoðað með skráningu, farið yfir helstu reglur og svarað spurningum. Skyldumæting fyrir þær sem eru að mæta á fyrsta mót, frjáls mæting fyrir aðrar.
  • Hálftíma fyrir mót – mælst til að vera mætt á völlinn og hita upp.
  • Tuttugu mínútum áður en við leggjum af stað gefum við upplýsingar um teig sem keppendur byrja að spila völlinn á. Það byrja allir á sama tíma og því byrjað á mismunandi stöðum á vellinum.
  • Tíu mínútum fyrir auglýstan mótstíma, sem er jafnframt rástími (tími til að leggja af stað í keppnina), þarf að mæta á teig og ákveða hver skráir skor keppenda. Einungis ein kona í hverju holli þarf að skrá skor.
  • Verðlaunaafhending og hópmynd eftir mót. Safnast saman hjá bekkjunum við fyrsta teig.
  • Leikur mótsins: Karfan út!
    • Leikreglur
      • Ef diskur kemur við einhvern hluta körfunnar fyrir utan stöngina undir körfunni sjálfri, en endar ekki ofan í körfunni þá fær spilari 1 stig sem er skráð á sér blað.
      • Ef diskur kemur við marga hluta körfunnar, t.d. keðjur, topp og körfu, þá fær spilari samt bara eitt stig.
      • Ef mörg mismunandi köst hjá spilara koma við körfuna og enda ekki ofan í þá fær spilari 1 stig fyrir hvert kast.
      • Ef diskur endar ofan í þá fær spilari ekki stig.
      • Ekki skiptir máli hvort um er að ræða kast eða pútt; ef diskur kemur við körfu frá löngu kasti, t.d. 65 metra kasti af teig, og endar ekki ofan í þá fær spilari líka 1 stig.
      • Sú sem fær flest stig vinnur!

 

Vallarreglur

FA1 spilar á hvítum teigum. FA2 og FA3 spila á rauðum teigum. Spilaðir verða 2x9 holu hringir, 18 holur í heildina. Engin OB nema tjörn og lækir. Ef diskur lendir á brú þá spilast hann af brúnni.

Muna eftir almennum Casual Area reglum sem eiga við um alla djúpa polla, mýri og hættuleg drullusvöð.

Share

What would you like to share?