Login

07/21/23 - 07/23/23|Hamrar 18 holu layout 2023 bláir → 1|ICELAND, Norðurland Eystra, Akureyrarbær


Norðurlandsmót FGA 2023 í boði Forest Lagoon

21 - 23.Júlí 2023

Spilaðir verða þrír hringir, 54 brautir. Einn 18 brauta hringur á dag, föstudag, laugardag og sunnudag.
Mótið er PDGA vottað B mót og er hluti af gullmótaröð Íslandsbikarsins 2023.
Á laugardagskvöldinu verður keppt í lengsta kasti með svipuðu fyrirkomulagi og í fyrra.

Alla dagana verður leikið á Hömrum

Mótsgjaldið skal leggja inn á reikning Frisbígolffélags Akureyrar
Kennitala: 650917-0810 
Reikningsnr.: 565-14-50917

Mótsgjald fyrir flokka er eftirfarandi:
MPO, FPO, MP40, MP50: 10.000 kr.
MA1, FA1 og MA2: 8.000 kr.
MJ18: 5.000 kr.

Skráning er ekki staðfest fyrr en mótsgjald hefur verið greitt!

Rástímar

Ræst verður út frá 1. teig í fjögurra keppenda hópum með 10 mínútna millibili.
Fyrsti hópur verður ræstur út kl 14:00 á föstudeginum
Fyrsti rástími laugardag og sunnudag verður kl. 10.00.

Sama rásröð verður alla dagana MA2 - MA1 - FA1 - MJ18 - MP50 - MP40 - FPO - MPO

Keppt verður í eftirtöldum flokkum. Leiðbeinandi viðmið ÍFS um lágmark PDGA-stigafjölda í hverjum flokki eru í sviga þar sem við á:

Blandaður meistaraflokkur MPO - bláir teigar (900+)

Meistaraflokkur kvenna FPO - bláir teigar (800+)

Blandaður Stórmeistaraflokkur 40+MP40 - bláir teigar (–)

Blandaður Stórmeistaraflokkur 50+ MP50 - bláir teigar (–)

Blandaður Almennur flokkur 1 MA1 - bláir teigar (840+)

Almennur flokkur kvenna 1 FA1 - hvítir teigar (700+)

Blandaður Ungmennaflokkur ≤18 MJ18 - bláir teigar (–)

Blandaður Almennur flokkur 2 MA2 - bláir teigar (–)

Skráning hefst 30.Júní og verður í þremur þrepum.

Endugreiðslur verða gerðar samkvæmt PDGA reglum. 

Mótstjórar eru Pétur Elvar Sigurðsson og Sigurður Eiríksson
 

Styrktaraðili mótsins er Forest Lagoon


Share

What would you like to share?