Login

07/29/23 - 07/30/23|Vífilsstaðir → 20|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Garðabær

  • PDGA: Ratings
  • Comment: Silfurmót 4

Við byrjum kl 10.30 á laugardeginum, mæting við 1,teig ekki síðar en kl 10.00

4. Silfurmót ÍFS er haldið af Frisbígolfbúðinni á Vífilsstöðum 29. - 30 júlí 2023.

Spilaðir verða 3 hringir ( einn hringur samanstendur af 2 x10 hefðbundnum brautum.),

tveir á laugardeginum og einn á sunnudeginum.

Þátttökugjald er 5.000kr og allir þátttakendur fá 2 diska frá Discmania C-line FD og PD 

Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á:
kt.: 040466-5179
rnr.: 0140-05-11186

Silfurmótaröð Íslandsbikarsins eru fimm frisbígolfmót sem eru haldin frá maí til
ágúst. Mótaröðin er skipulögð af Íslenska frisbígolfsambandinu. Þessi mót eru bæði
ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni og þeim sem eru að afla sér
reynslu og þróa færni í frisbígolfi. Mótin gefa PDGA stig en ekki verða PDGA stiga
lágmörk fyrir þátttöku í Silfurmótaröðinni. Keppendur í Gullmótaröðinni geta ekki
keppt í Silfurmótaröðinni enda tilgangurinn að auka framboð fyrir þennan hóp
keppenda.
Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í öllum flokkum á hverju móti og eru þau
verðlaun afhent í lok móts enda hvert mót sjálfstætt. Hvert sæti gefur stig til
Íslandsbikarsins og verður stigalisti uppfærður eftir hvert mót. Þrjú bestu mótin gilda.
Heimilt er að skipta um flokk á milli móta en keppandi tekur ekki áunnin stig með sér
á milli flokka. Keppandi getur fært sig yfir í Gullmótaröð ef hann nær PDGA stiga
lágmörkum þar og hefur náð góðum tökum á færni sinni, stig færast ekki á milli
mótaraða og ekki er hægt að fara aftur í Silfurmótaröð ef keppt er í Gullmótaröð.
Að síðasta Silfurmótinu loknu verður veittur Íslandsbikar í hverjum flokki. Um er að
ræða farandbikar sem sigurvegarar varðveita í eitt ár eða þar til næstu mótaröð
lýkur. Hver keppandi getur aðeins unnið Íslandsbikar í einum flokki hvert ár og sé
keppandi stigahæstur í fleiri en einum flokki telst hann sigurvegari sterkasta
flokksins.
Hámarksfjöldi á Silfurmótum er 100 manns.

Share

What would you like to share?