Login
Íslandsbikarinn Silfurmót 5. - Í Boði Hobby og Sport - Háskólavöllur Akureyrar  08/26/23 10:00
  • Comment: Silfurmót 5.

Head to head

Players

  • 800
  • 884
  • 806
  • Add player

    Detailed results

    Bjarni þór Bragason

    Place:
    1
    Score round:
    0
    To par:
    0
    Round rating:
    1552

    Bjarki Thor

    Place:
    1
    Score round:
    0
    To par:
    0
    Round rating:
    1552

    Jón Páll Grétarsson

    Place:
    2
    Score round:
    0
    To par:
    0
    Round rating:
    1552

    Við byrjum kl 11 á laugardeginum, það þarf að melda sig lágmarki klukkutíma fyrir rástímann sinn. Annaðhvort í dómaratjaldi eða í síma 869-4117

     

    5. Silfurmót ÍFS er haldið af Hobby og Sport á Háskólavellinum á Akureyri 26.-27 ágúst 2023.

     

    Spilaðir verða 2 hringir ( einn hringur hvorn daginn )

     

    Þátttökugjald er 5.000kr og allir þátttakendur fá leikmannapakka frá Hobby og Sport.

     

    Vinsamlegast greiðið þátttökugjald inn á:

    kt.: 650917 - 0810

    rnr.: 0565 - 14 - 050917

     

    Silfurmótaröð Íslandsbikarsins eru fimm frisbígolfmót sem eru haldin frá maí til

    ágúst. Mótaröðin er skipulögð af Íslenska frisbígolfsambandinu. Þessi mót eru bæði

    ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni og þeim sem eru að afla sér

    reynslu og þróa færni í frisbígolfi. Mótin gefa PDGA stig en ekki verða PDGA stiga

    lágmörk fyrir þátttöku í Silfurmótaröðinni. Keppendur í Gullmótaröðinni geta ekki

    keppt í Silfurmótaröðinni enda tilgangurinn að auka framboð fyrir þennan hóp

    keppenda.

    Veitt eru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í öllum flokkum á hverju móti og eru þau

    verðlaun afhent í lok móts enda hvert mót sjálfstætt. Hvert sæti gefur stig til

    Íslandsbikarsins og verður stigalisti uppfærður eftir hvert mót. Þrjú bestu mótin gilda.

    Heimilt er að skipta um flokk á milli móta en keppandi tekur ekki áunnin stig með sér

    á milli flokka. Keppandi getur fært sig yfir í Gullmótaröð ef hann nær PDGA stiga

    lágmörkum þar og hefur náð góðum tökum á færni sinni, stig færast ekki á milli

    mótaraða og ekki er hægt að fara aftur í Silfurmótaröð ef keppt er í Gullmótaröð.

    Að síðasta Silfurmótinu loknu verður veittur Íslandsbikar í hverjum flokki. Um er að

    ræða farandbikar sem sigurvegarar varðveita í eitt ár eða þar til næstu mótaröð

    lýkur. Hver keppandi getur aðeins unnið Íslandsbikar í einum flokki hvert ár og sé

    keppandi stigahæstur í fleiri en einum flokki telst hann sigurvegari sterkasta

    flokksins.

    Hámarksfjöldi á Silfurmótum er 100 manns.

    Share

    What would you like to share?