Login

09/23/23 10:00|Úlfljótsvatnsvöllur → Nýtt 18 brauta 2022|ICELAND, Suðurland, Grímsnes- og Grafningshreppur


    Úlli ljóti er landsfrægt frisbígolfmót sem haldið verður á Úlfljótsvatnsvelli laugardaginn 23. september 2023 en þetta er eitt elsta folfmót landsins enda fyrsta mótið haldið árið 2002 þegar völlurinn var opnaður. 

    Spilaðar er samtals 36 brautir og verður spilaður heill hringur (18 brautir) fyrir hádegið og annar (18 brautir) eftir hádegið sem þó gæti breyst ef veður er óhagstætt. Sem áður verður Úlli ljóti styrktarmót þar sem allur ágóði fer í að byggja áfram upp völlinn m.a. að útbúa góða heilsársteiga.

    Keppt verður í tíu flokkum og eru veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Mótið er ekki PDGA reitað.

    Flokkar í boði:
    Opinn flokkur – Bláir teigar
    Meistaraflokkur kvenna – Bláir teigar
    Almennur kvennaflokkur – Hvítir teigar
    Almennur flokkur 1 – Bláir teigar
    Stórmeistaraflokkur 40 og eldri – Bláir teigar
    Stórmeistaraflokkur kvenna 40 og eldri – Hvítir teigar
    Stórmeistaraflokkur 50 og eldri – Bláir teigar
    Ungmennaflokkur (15 ára og yngri) – Bláir teigar
    Barnaflokkur (12 ára og yngri) – Rauðir teigar
    Skátaflokkur (fyrir skáta) - Rauðir teigar


    Mótsstjóri er Runólfur Helgi Jónasson.

    Þátttökugjald er 5.000 kr. og rennur allur hagnaður í endurbætur á vellinum. Innifalið er grillaður hamborgari á milli umferða og drykkur.

    Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning ÍFS: Banki 513-14-503326, Kt. 450705-0630 skýring "Úlli2"

    Frítt er fyrir barnaflokk.

    Mæting er kl. 09.30 og hefst keppni kl. 10.00. Það tekur 45-50 mínútur að keyra á Úlfjótsvatn. Öll velkomin.

    Share

    What would you like to share?