Login

11/01/23 20:00|Vífilsstaðir → 20|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Garðabær


PosNameICP totalICP %

Glóðagolf FFH #1 - Vífilsstaðir

Frisbígolffélag Hafnarfjarðar (FFH) stendur fyrir glóðagolf mótum á miðvikudögum í nóvember.

Spilað verður tvo hringi, samtals 20 körfur.

Braut 5 / 15 kvöð ( mandó ), fara verður hægra megin við stöngina.
Braut 1 / 3 / 10 / 11 / 13 / 20 Möl er toffæra ( hazzard ).

Stígur neðst á vellinum og handan er utan vallar.

Flokkar: Opinn flokkur, almennur flokkur og kvennaflokkur.
Spilarar sem eru án PDGA rating eða eru undir 850 PDGA stigum geta skráð sig í almenna flokkinn.

Veitt eru verðlaun fyrir efsta sætið í hverjum flokk.
CTP verðlaun eru veitt fyrir þann sem á disk sem er sem næst stöng á holu 9.
Ása verðlaun! Ef fleiri en tveir ása þá er skorið úr því með CTP keppni á 10. braut.


Melding fer fram með SMS í síma 762-8768.
Melding fer fram á móts degi milli 17:00 - 19:20 og holl koma inn fljótlega í kjölfarið.

Minnum fólk á að melda sig, það setur mótshaldara í erfiða stöðu að troða inn leikmönnum eftir að holl hafa verið birt.


Mótsgjald er 1.000 krónur.
Frítt fyrir félagsaðildar meðlimi í FFH - http://www.ffh.is/skraning/

Banki: 0537-26-009091
Kennitala: 6507221160

Sýnum tillitssemi og höfum augun opin svo aðrir keppendur séu ekki í hættu.
Ekki kasta ef hætta er á að diskur lendi í gangandi/hjólandi vegfarendum á stígum.

Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.

Mótstjórar: Hörður Guðmundsson og Siggi Gunn

Share

What would you like to share?