Frísbígolf félag Hafnarfjarðar blæs til mótaraðar í ágúst sem beint er að nýjum spilurum sem og reyndari spilurum sem hafa lágt rating. Spilað verður á minni og léttari völlum heldur en tíðkast í stærri mótum, eitthvað sem henntar lægra rated spilurum betur.
Skráning verður þannig að þar til sólahring fyrir mót geta eingöngu þeir sem eru rated 825 eða lægra (eða eru ekki rated) skráð sig í einn af tveimur flokkum, karlar og konur. Opnað er á skráningu fyrir þá sem eru hærra rated klukkan 12:00 degi fyrir mót og skrá þeir sig þá í sérstakan opinn flokk.
Mótin verða alla miðvikudaga í ágúst og byrja kl 19:00
Spilaðir verða tveir hringir, samtals 20 brautir.
Ekkert OB er notað á vellinum í þessu móti.
Skráning og reglur
Skráning fer fram á metrix,þáttökugjald er 1.000kr.
ATH: Meðlimir í Frisbígolffélagi Hafnarfjarðar sem hafa mótsaðild greiða ekkert þáttökugjald https://www.ffh.is/skraning/
Vinnsamlegast greiðið þáttökugjald inn á:
Banki: 0537-26-009091
Kennitala: 6507221160
Tekið er við þáttökugjaldi í reiðufé á staðnum.
Melding fer fram með SMS í síma762-8768.Melding fer fram frá 17:00til 18:30 og holl koma inn fljótlega í kjölfarið.
Sýnum tillitssemi og höfum augun opin svo aðrir keppendur séu ekki í hættu. Ekki kasta ef hætta er á að diskur lendi í gangandi/hjólandi vegfarendum á stígum. Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.
Mótstjórar: Guðmundur Sævarsson og Siggi Gunn Farið er eftir PDGA reglum og geta þáttakendur spurt mótstjóra ef upp koma vafamál.