Mótstjóri er Björn Gunnarsson, ef það eru spurningar endilega hringið í mig í síma 821-8589.
Keppt verður í Njarðvíkurskógi laugardaginn 7. september og leikinn verður einn hringur. Ræst verður út af öllum teigum samtímis klukkan 12:00. Skráning hefst þriðjudaginn 3. september klukkan 20:00 og lokar föstudaginn 6. september klukkan 22:00.
Völlurinn
Völlurinn er 18 brautir á frekar opnu svæði en fyrir mótið og einu OB gildandi í þessu móti verður innan grindverks í kringum hús á 16 braut og vinstra megin við gangstétt (þar með talið gangstéttin sjálf) á braut 18 fyrir utan merktan hring c1 í kringum körfu sem er ekki OB.
7 keppnisflokkar eru í boði:
Opinn flokkur - MPO
Almennur flokkur 1 - MA1
Almennur flokkur kvenna 1 - FA1
Almennur flokkur 2 – MA2
Almennur flokkur kvenna 2 – FA2
Almennur flokkur 3 – MA3
Ungmennaflokkur 15 ára og yngri - MJ15
Mótsgjald: 2.500 kr. (Frítt fyrir meðlimi FFS og einnig fyrir börn 12 ára og yngri)
Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FFS: 0133-26-013426, Kt. 531217-0390, og senda kvittun fyrir greiðslu á bosos3@hotmail.com. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt.
Stranglega bannað er að reykja, veipa og neyta áfengis eða annarra vímuefna.
Keppendur 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.