Hole-by-hole statistics
View: Grouped chart | Detailed chart | TableThe result was updated on: 2024-11-24 15:09:47. Free discgolfmetrix.com is used
User statistics
Results will be updated every 30 seconds!
Vetrarmòt FGR
Vetramót FGR eru frisbígolfmót sem haldin eru á sunnudögum í vetur en spilað verður á mismunandi völlum og mótin með mismunandi fyrirkomulagi.
Öllum er velkomið að taka þátt enda boðið uppà ólíka getuflokka þegar við á, og keppendur velja sér þannig flokk við hæfi. Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref á folfmótum eru sérstaklega velkomin, en mòtin henta öllum getustigum og aldri. Við hvetjum alla til að taka þátt, sjáumst á sunnudögum í vetur.
Mótafyrirkomulag
Eitthvað annað undir diskanna en hefðbundin frisbítaska.
Aukaverðlaun fyrir frumlegustu "töskuna".
Nöfn keppenda fara í pott eftir hvert mót og verða dregin 2 nöfn eftir hvert mót og fá þeir aðilar disk, en ath keppendur verða vera a staðnum!
Þeir sem ekki voru dregnir út halda nöfnum sínum í pottinum, svo því oftar sem þu keppir þvi meiri líkur að vera dreginn út!
Ekki verða veitt nein önnur verðlaun.
Almennar upplýsingar:
Vetrarmót FGR verður nk sunnudag 24.nóvember kl 12:00 í Kópavogsdal, spilaður einn hringur.
Skráning opnar föstudaginn 22.nóvember kl 18:00 og lokar sunnudaginn 24.nóvember kl 10:30
Skràð er skor á metrix og er nóg að einn keppandi í hollinu skrái.
Mótsgjald er 1000 kr á mann , en mótið er innifalið fyrir greidda meðlimi í gullaðild FGR 2024.
FGR GULLMEÐLIMIR FÁ FORGANG Í MÓTIÐ.
Reikningsupplýsingar: 450917-3030 / 515-26-173030
Vellir og flokkar
Ef pollar/drulla/greinahrúga/svell hefur myndast á vellinum þá eru þeir casual ( ef ekki er hægt að bakka beint frá körfu án þess að lenda OB þá má taka styðstu leið út en ekki í àtt að körfu. )
Ef það er gangandi/hjólandi vegfarandi á göngustígum á vellinum, ekki þá kasta.
Hafið augun opin að aðrir keppendur séu ekki í hættu að fá disk í sig.
Fyrirkomulag:
Mótstjóri: Guðrún og Hoddó
Melding er á staðnum! Allir hittast við vallaskiltið kl 11:40, stutt spjall áður en keppendur fara a teig.
Ef keppandi þarf að ná sambandi við mótsstjóra vegna mótsins vinsamlegast hafið samaband í mótasímann eða gegnum e-mail , ekki gegnum perónulega messenger mótsstjóra.