.png)
Trilogy challenge FFS 2025
ATH! Melding og afhending diska verður við teig 1 frá klukkan 13:00
Keppt verður í Njarðvíkurskógi sunnudaginn 1. júní og leikinn verður einn hringur. Ræst verður út af öllum teigum samtímis klukkan 14:00. Skráning hefst þriðjudaginn 8. apríl klukkan 18:00 og lokar mánudaginn 5. maí klukkan 20:00.
Allir leikmenn fá leikmannapakka sem inniheldur 3 diska og það er aðeins leyfilegt að nota þá diska á mótinu. Því þurfa keppendur ekki að taka neina diska með sér. Verðlaun verða veitt fyrir 1. sætið í hverjum flokki.
Völlurinn
Völlurinn er 18 brautir (sjá kort í manual)
3 keppnisflokkar eru í boði:
Almennur flokkur 1 - MA1
Almennur flokkur kvenna 1 - FA1
Ungmennaflokkur 15 ára og yngri - MJ15
Mótsgjald: 8.500 kr. (Leikmannapakki innifalinn)
Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FFS: 0133-26-013426, Kt. 531217-0390, og senda kvittun fyrir greiðslu á frisbigolffelagsudurnesja@gmail.com. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt. Mjög mikilvægt er að allir hafi greitt mótsgjaldið þegar skráningu lýkur svo hægt sé að panta leikmannapakkana.
Stranglega bannað er að reykja, veipa og neyta áfengis eða annarra vímuefna.
Keppendur 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.