Login

PosNameOCP totalOCP average

Ljósafossvöllur

Bláir fyrir MPO og MA1

Hvítir teigar fyrir FA1 og MJ<15

Spilaður 1 hringur

Vatn og girðing afmarka völlinn.

Einu OB eru vatn og girðing sem afmarka völlinn og svo akstursgata og bílaplan.

Bannað er að sækja diska sem enda út í vatni. ALVEG SAMA HVERSU STUTT ÞAÐ ER.

Breytt snið:
Braut 1 verður spiluð sem eyja - mótstjóri mun spreya hvíta línu í 10-15m umhverfis körfu og allt utan þess er hazard.
Braut 15 verður spiluð sem eyja - mótstjóri mun spreya hvíta línu í 10-15m umhverfis körfu og allt utan þess er hazard.
Karfa 18 verður spiluð lengri og sem par 4 - valinn verður ein karfa á pútt vellinum og hún notuð sem karfa fyrir 18.

Lítill pútt völlur á staðnum fyrir upphitun.

Ákveðið var að vera með bikarmótaröð á Suðurlandi og spila á sem flestum völlum.

Mótgjald er 1500 kr, en frítt er fyrir meðlimi Frisbígolffélags Árborgar.

Fyrir greiðslu ræðið við mótstjóra.

Sá sem er stiga hæðstur í lok sumars hreppir Suðurlandsbikarinn.
Stig eru gefinn fyrir árangur/sæti í hverju móti og fyrir þáttöku í hverju móti.

4 flokkar í boði - MPO, MA2, FA1, Junior<15

Suðurlandsbikar 2025

Vellir sem fyrirhugað er að keppa á í sumar, með fyrirvara um breytingar.

  • Þorlákshöfn
  • Selfoss
  • Stokkseyri
  • Hveragerði
  • Árnes, Stóra-hof
  • Ljósafossvöllur
  • Flúðir
  • Hella
  • Hvolsvöllur
  • Úlfljótsvatn
  • Borg
  • Miðhúsaskógur
  • Apavatn
  • Vík í Mýrdal

Áætlað er að spila á þessum völlum þó sumir þeirra séu stuttir. Þetta er gert til að virkja vellina og vera meiri sýnilegir.  Spilaðar eru að lágmarki 18 körfur á hverjum velli.

Share

What would you like to share?