Login

7/25/25 - 7/27/25|Hamrar 18 holu layout 2023 bláir → 1|ICELAND, Norðurland Eystra, Akureyrarbær


PosNameBullseye hit countBullseye hit %

Norðurlandsmót FGA 2025 í boði Forest Lagoon


25 - 27.Júlí 2025


Spilaðir verða þrír hringir, 54 brautir. Einn 18 brauta hringur á dag, föstudag, laugardag og sunnudag.
Mótið er PDGA vottað C mót og er sjálfstætt mót rekið af FGA
Á Laugardags kvöldi verður keppt í lengsta kasti keppni (ekki nauðsín að keppa) en það er frítt fyrir alla að koma og taka þátt


Alla dagana verður leikið á Hömrum

Mótsgjaldið skal leggja inn á reikning Frisbígolffélags Akureyrar
Kennitala: 650917-0810 
Reikningsnr.: 565-14-50917

Mótsgjald fyrir flokka er eftirfarandi:
MPO, FPO, MP40, MP50: 9.000 kr.
MA1, FA1 og MA2: 9.000 kr.
MJ18 og MJ15: 5.000 kr.

Skráning er ekki staðfest fyrr en mótsgjald hefur verið greitt!

Rástímar

Ræst verður út frá 1. teig í fjögurra keppenda hópum með 10 mínútna millibili.
Fyrsti hópur verður ræstur út kl 14:00 á föstudeginum
Fyrsti rástími laugardag og sunnudag verður kl. 10.00.

Sama rásröð verður alla dagana MA2 - FA1 - MJ15 - MJ18 - MA1 - MP50 - MP40 - FPO - MPO

Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

Blandaður meistaraflokkur MPO - Bláir teigar (-)

Meistaraflokkur kvenna FPO - Bláir teigar (-)

Blandaður Stórmeistaraflokkur 40+MP40 - Bláir teigar (–)

Blandaður Stórmeistaraflokkur 50+ MP50 - Bláir teigar (–)

Blandaður Almennur flokkur 1 MA1 - Bláir teigar (-)

Almennur flokkur kvenna 1 FA1 - Hvítir teigar (-)

Blandaður Ungmennaflokkur ≤18 MJ18 - Bláir teigar (–)

Blandaður Ungmennaflokkur ≤15 MJ15 - Hvítir teigar (–)

Blandaður Almennur flokkur 2 MA2 - Hvítir teigar (–)

Skráning hefst föstudaginn 5.júlí.

Endugreiðslur verða gerðar samkvæmt PDGA reglum. 

https://discgolfmetrix.com/3378754 texas mót á fimmtudeginum

Mótstjórar eru Halldór Már Guðlaugsson

 

Share

What would you like to share?