6/13/26 10:00|Úlfljótsvatnsvöllur → Nýtt 19 brauta 2025|ICELAND, Suðurland, Grímsnes- og Grafningshreppur
Úlli ljóti 2026 er styrktarmót sem haldið verður á Úlfljótsvatni laugardaginn 13. júní 2026. Úlli verður eins og áður að keppt verður á tveimur völlum, Úlfljótsvatnsvelli og Ljósafossvelli en spilaður verður einn hringur á hvorum velli. Mótið er PDGA vottað.
Úlli ljóti styrktarmót þar sem allur hagnaður er nýttur til að bæta völlinn og gera hann sambærilegan við aðra bestu velli landsins. Búið er að byggja góða heilsársteiga á 15 brautum og setja nýrri körfur á rúmlega helming vallarins. Framundan er að skipta áfram út körfum, laga merkingar og klára þá teiga þar sem hægt er að koma þeim fyrir.
Flokkar:
Opinn meistaraflokkur MPO - tveir hringir (einn á hvorum velli) á bláum teigum
Meistaraflokkur kvenna FPO - tveir hringir (einn á hvorum velli) á bláum og hvítum teigum
Almennur flokkur blár MA1 - tveir hringir (einn á hvorum velli) á bláum teigum
Almennur flokkur hvítur MA2 - tveir hringir (einn á hvorum velli) á hvítum teigum
Almennur flokkur kvenna FA1 - tveir hringir (einn á hvorum velli) á hvítum teigum
Ungmennaflokkur 18 ára og yngri MJ18 - tveir hringir (einn á hvorum velli) á bláum teigum
Barnaflokkur 12 ára og yngri MJ12 - tveir hringir (einn á hvorum velli) af hvítum teigum
Stórmeistaraflokkur 40+ MP40 - tveir hringir (einn á hvorum velli) af bláum teigum
Stórmeistaraflokkur 50+ MP50 - tveir hringir (einn á hvorum velli) af bláum teigum
Skátaflokkur - tveir hringir (einn af hvorum velli) af hvítum teigum fyrir skáta.
Mótsstjórar eru Runólfur Helgi Jónasson og Birgir Ómarsson.
Þátttökugjald er 7.000 kr. og rennur allur hagnaður í endurbætur á vellinum.
Innifalið er grillaður matur á milli umferða og drykkur.
Greiða þarf þátttökugjald með millifærslu á reikning Úlla ljóta: Banki 0526-26-223144, Kt. 100764-2969
Frítt er fyrir barnaflokk og í skátaflokk.
Mæting er kl. 09.30 við tjaldmiðstöðina á Úlfljótsvatni og hefst keppni kl. 10.00. Það tekur 45-50 mínútur að keyra á Úlfjótsvatn. Öll velkomin.