Login

05/21/21 - 05/23/21|Gufunes 2021 → 1|ICELAND, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavíkurborg


PosNamePenalty totalPenalty average

Opna Reykjavíkurmótið 2021

Gufunesi 21.-23. maí

Spilaðir verða þrír hringir, 54 brautir. Einn 18 brauta hringur á dag, föstudag, laugardag og sunnudag. Mótið er PDGA vottað C mót og er hluti af Íslandsbikarnum 2021.

Mótsgjald 6.000 kr. (innifalið í aðild að FGR)

Sérstakan mótsdisk verður hægt að panta til 22. april með tölvupósti á motastjorn@fgr.is, verð: 2.000 kr.

 

Rástímar

Ræst verður út frá 1. teig í fjögurra keppenda hópuum með 10 mínútna millibili.

Síðasti hópur verður ræstur út kl. 20 á föstudegi, tími fyrsta hóps ræðst af fjölda þátttakenda, líklegur fyrsti rástími er 15.30 á föstudeginum. Fyrsti rástími laugardag og sunnudag verður kl. 9.00.

 

Keppt verður í eftirtöldum flokkum. Leiðbeinandi viðmið ÍFS um lágmark PDGA-stigafjölda í hverjum flokki eru í sviga þar sem við á:

Opinn meistaraflokkur MPO - bláir teigar (900+)

Meistaraflokkur kvenna FPO - bláir teigar (800+)

Stórmeistaraflokkur 40+MP40 - bláir teigar (–)

Stórmeistaraflokkur 50+ MP50 - bláir teigar (–)

Almennur flokkur 1 MA1 - bláir teigar (840+)

Almennur flokkur kvenna 1 FA1 - hvítir teigar (700+)

Almennur flokkur 2 MA2 - bláir teigar (770+)

Almennur flokkur kvenna 2 FA2 - rauðir teigar (–)

Almennur flokkur 3 MA3 - hvítir teigar (–)

Barnaflokkur ≤12 MJ12 - rauðir teigar (–)

Ungmennaflokkur ≤18 MJ18 - hvítir teigar (–)

 

Þrjú sæti verða frátekin í hverjum flokki þar til 12. maí.

Skráning hefst 20. febrúar og verður í þremur þrepum:

20. -26. febrúar - Meistaraflokkar: opið fyrir skráningu spilara með 880 stig eða fleiri í opinn flokk, opið fyrir almenna skráningu í meistaraflokk kvenna og stórmeistaraflokka.

27. febrúar - 6. mars - 840 PDGA stig: opnað fyrir skráningu spilara með 840 stig eða fleiri og allra í kvennaflokka og ungmennaflokka.

7. mars verður opnað fyrir almenna skráningu í alla flokka.

 

Nánari upplýsingar verða á:

FB viðburður: https://fb.me/e/50IX3TJSw

Vefsíða á fgr.is: https://www.fgr.is/opna-reykjavkurmti-2021

Skráning er á Discgolfmetrix.com

Mótsstjórar:

Jón Símon Gíslason

Ólafur Haraldsson

Share

What would you like to share?