Login

10/01/22 13:00|Njarðvíkurskógur|ICELAND, Reykjanes, Reykjanesbær


Trilogy challenge FFS 2022

Keppt verður í Njarðvíkurskógi laugardaginn 1. október og leikinn verður einn hringur. Ræst verður út af öllum teigum samtímis klukkan 13:00. Skráning hefst þriðjudaginn 2. ágúst klukkan 18:00 og lokar miðvikudaginn 7. september klukkan 20:00.

Allir leikmenn fá leikmannapakka sem inniheldur 3 diska og það er aðeins leyfilegt að nota þá diska á mótinu. Því þurfa keppendur ekki að taka neina diska með sér. Verðlaun verða veitt fyrir 1, 5 og 10 sæti í hverjum flokki. Auk þess verða dregin út aukaverðlaun eftir mót.

Völlurinn

Völlurinn er 18 brautir á frekar opnu svæði en fyrir mótið verður búið að bæta við OB línum o.fl. sem gera völlinn meira krefjandi (sjá kort fyrir neðan textann)

3 keppnisflokkar eru í boði: 

Almennur flokkur 1 - MA1

Almennur flokkur kvenna 1 - FA1

Ungmennaflokkur 15 ára og yngri - MJ15

 

Mótsgjald: 6.000 kr. (Leikmannapakki innifalinn)

Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FFS: 0133-26-013426, Kt. 531217-0390, og  senda kvittun fyrir greiðslu á frisbigolffelagsudurnesja@gmail.com. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt. Mjög mikilvægt er að allir hafi greitt mótsgjaldið þegar skráningu lýkur svo hægt sé að panta leikmannapakkana.

Stranglega bannað er að reykja, veipa og neyta áfengis eða annarra vímuefna.

Keppendur 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.

Share

What would you like to share?