Login

11/12/22 13:00|Njarðvíkurskógur|ICELAND, Reykjanes, Reykjanesbær


Frumskógar texas FFS

Keppt verður í Njarðvíkurskógi laugardaginn 12. nóvember og leikinn verður einn hringur. Ræst verður út af öllum teigum samtímis klukkan 13:00. Skráning hefst sunnudaginn 30. október og lokar föstudaginn 11. nóvember klukkan 20:00.

MELDING Á MILLI 11:30 OG 12:30 Í SÍMA 7887495

Keppt verður í texas (2 saman í liði) og verður notast við besta kast og versta kast til skiptis. 


Versta kast á brautum 1,3,5,7,9,11,13,15,17

Verra kastið gildir alla brautina eða þangað til diskurinn er kominn í körfuna. Það er nóg að einn í liðinu nái að pútta ofan í. Liðin í hollinu velja verra kast fyrir hvort annað. (Tough throw reglur)

https://www.pdga.com/rules/official-rules-disc-golf/appendix-b

Besta kast á brautum 2,4,6,8,10,12,14,16,18

Völlurinn

Völlurinn er 18 brautir á frekar opnu svæði en fyrir mótið verður búið að bæta við OB línum o.fl. sem gera völlinn meira krefjandi (sjá kort fyrir neðan textann)

3 keppnisflokkar eru í boði: 

Almennur flokkur

Kvennaflokkur

Paraflokkur

Mótsgjald: 2.000 kr. á lið (Frítt fyrir börn 12 ára og yngri)

Greiða þarf mótsgald með millifærslu á reikning FFS: 0133-26-013426, Kt. 531217-0390, og  senda kvittun fyrir greiðslu á frisbigolffelagsudurnesja@gmail.com. Athugið að skráning er ekki gild fyrr en mótsgjald hefur verið að fullu greitt.

Stranglega bannað er að reykja, veipa og neyta áfengis eða annarra vímuefna.

Keppendur 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið í hverjum flokki ásamt því að það eru ásaverðlaun í boði.

Mótsstjórar: Ágúst Þór Birnuson og Björn Gunnarsson

 

 

Share

What would you like to share?